Stormur vinnur Hólabergsbikarinn
Helgina 25. og 26. júní fór fram árlegur deildarviðburður Retrieverdeildarinnar, þar mættum við með C.I.E. ISShCH RW-14 -15 Heatwave Little Miss Sunshine "Sól" sem stóð sig svakalega vel og var besta tík tegundar BOS og ISShCh RW-13-14-15 Dewmist Glitter´n Glance "Storm" sem varð besti hundur tegundar eða BOB og BIS-2, einnig mætti okkar elskulegi C.I.E. ISShCh Allways On My Mind From Famous Family "Josh" aftur til leiks og í þetta skiptið keppti hann í fyrst sinn sem öldungur og gerði hann sér lítið fyrir og varð besti öldungur sýningar BÖS, dómari var Vidar Grundetjern frá Noregi. Þökkum við Vidar fyrir góðar umsagnir um hundana okkar.
Einnig tók Stormur líka þátt í veiðiprófi og náði 1. einkunn í byrjendaflokki og var valinn besti hundur í flokki, dómari var Sigurmon Hreinsson, þökkum við honum fyrir góða umsögn.
Að lokum landaði Stormur Hólabergsbikarnum með samanlagðan besta árangur á sýningu og veiðiprófi helgarinnar, við eru ótrúlega stoltar af þessum klára og duglega hundi!